Sameining hluta og bygging forma

Sameinaðir teikningahlutir hegða sér eins og hópaðir hluti, nema að ekki er hægt að fara inn í hópinn til að breyta einstökum hlutum.

Táknmynd fyrir athugasemd

Þú getur bara sameinað tvívíddarform.


Til að sameina tvívíddarhluti:

  1. Veldu 2 eða fleiri tvívíða hluti.

  2. Choose Shape - Combine.

Ólíkt hópum taka sameinaðir hlutir á sig alla eiginleika lægsta frumhlutarins í staflanum. Þú getur tvístrað aftur hlutum sem hafa verið sameinaðir, en upprunalegir eiginleikar hlutanna eru tapaðir.

Þegar hlutir eru sameinaðir, verða til göt þar sem hlutirnir skarast.

Skýringamynd um sameiningu hluta

Á myndinni eru ósameinaðir hlutir til vinstri og sameinaðir hlutir til hægri.

Bygging forma

Þú getur útbúið flóknari form með því að nota Form - Bræða saman, Draga frá og Skörun skipanirnar á tvo eða fleiri hluti.

Táknmynd fyrir athugasemd

Formgerðarskipanir vinna einungis með tvívíða hluti.


Tilbúin form taka á sig eiginleika lægsta hlutarins í staflanum.

Til að byggja form:

  1. Veldu 2 eða fleiri tvívíða hluti.

  2. Choose Shape and one of the following:

Formskipanir

Á meðfylgjandi skýringamyndum eru upprunalegu hlutirnir til vinstri og breyttu formin til hægri.

Form - Bræða saman

Skýringamynd um sambræðslu hluta

Bætir flötum völdu hlutanna við flöt lægsta hlutarins í staflanum.

Form - Draga frá

Skýringamynd um frádrátt hluta

Dregur flöt völdu hlutanna frá fleti lægsta hlutarins í staflanum.

Form - Skörun

Skýringamynd um skörun hluta

Þau svæði hlutanna sem skarast mynda nýja formið.

Flöturinn utan við skaraða svæðið er fjarlægður.

Please support us!