Eiginleikar LibreOffice Writer

LibreOffice Writer gerir þér kleyft að hanna og útbúa ritvinnsluskjöl sem geta innihaldið grafík, töflur, eða línurit. Hægt er að vista skjölin á margvíslegum sniðum, þar á meðal staðlaða OpenDocument sniðið (ODF), Microsoft Word .doc snið, eða HTML. Og auðveldega er hægt að flytja út skjalið á Portable Document Format (PDF).

Skrifa texta

LibreOffice Writer gerir þér kleyft að búa til bæði grunnskjöl, eins og minnisblöð, fax, bréf , ferilskrár og sameiningarskjöl, og einnig stór og flókin eða samsett skjöl, með heimildaskrá, tilvitnanir og atriðaskrá.

LibreOffice Writer inniheldur einnig gagnleg verkfæri eins og stafsetningaryfirferð, samheitaorðasafn, sjálfvirka leiðréttingu, og orðskiptingu ásamt margvíslegum sniðmátum fyrir ýmis tilefni. Einnig er hægt að búa til sín eigin sniðmát með því að nota leiðsagnarforritin.

Framsetning og uppbygging

LibreOffice offers a wide variety of options to design documents. Use the Styles window to create, assign and modify styles for paragraphs, individual characters, frames and pages. In addition, the Navigator helps you to quickly move around inside your documents, lets you look at your document in an outline view, and keeps track of the objects that you have inserted into your document.

Einnig er hægt að búa til ýmiskonar atriðaskrár og töflur í ritvinnsluskjölum. Hægt er að skilgreina uppsetningu og útlit á atriðaskrám og töflum samkvæmt þínum hentugleika. Lifandi tenglar og bókamerki leyfa þér að hoppa beint í viðkomandi atriði í textanum.

Útgáfustarfsemi með LibreOffice Writer

LibreOffice Writer inniheldur ýmiskonar útgáfuverkfæri og teiknitól til að hjálpa þér að búa til fagmannlega útlitandi skjöl, eins og bæklinga, fréttabréf og kynningar. Þú getur sniðið skjölin með margdálka útliti, textarömmum, grafík, töflum, og öðrum hlutum.

Útreikningar

Textaskjöl í LibreOffice eru með innbyggð reikniföll sem hjálpa þér með útreikninga eða rökrænar tengingar. Auðvelt er að búa til töflu í textaskjali fyrir útreikninga.

Búðu til myndefni

LibreOffice Writer teikniáhöldin gera þér kleift að búa til teikningar, myndir, merkingar, og ýmsa aðra teiknaða hluti inni í textaskjölum.

Settu inn myndefni

Hægt er að setja inn myndir á mismunandi sniðum inn í textaskjal, þar á meðal, JPG eða GIF sniði. Að auki, býður myndasafnið upp á safn af úrklippumyndum, og letursmiðjusafnið býður upp á að búa til stórkostlegar leturbrellur.

Sveigjanlegt forritsviðmót

The program interface is designed so that you can configure it according to your preferences, including customizing icons and menus. You can position various program windows, such as the Styles window or the Navigator as floating windows anywhere on the screen. You can also dock some windows to the edge of the workspace.

Draga&Sleppa

draga-og-sleppa eiginleikinn gerir þér kleyft að vinna hratt og auðveldlega með textaskjöl í LibreOffice. Til dæmis, geturðu dregið og sleppt hlutum, eins og grafík frá myndasafni, frá einum stað til annars í sama skjali, eða á milli LibreOffice skjala.

Hjálpartæki

Hægt er að nota hjálparkerfið sem fullkomið uppsláttarrit fyrir LibreOffice forrit, þar með talið leiðbeiningar fyrir einfaldar sem flóknar aðgerðir.