Stöðuslá
Stöðusláin inniheldur upplýsingar um núverandi skjal og birtir ýmsa hnappa með sértækum aðgerðum.
Tungumál
Birtir tungumál núverandi texta.
Smelltu til að opna valmynd þar sem hægt er að velja annað tungumál.
Veldu ekkert til að sleppa að útiloka texta frá stafsetningarleiðréttingu eða orðaskiptingu.
Veldu endursetja í sjálfgefið tungumál til að setja aftur sjálfgefið tungumál fyrir val eða málsgrein.
Veldu 'Meira' til að opna glugga með fleiri möguleikum.
Stafræn undirritun
See also Stafræn undirritun.
Framsetning aðdráttar og skoðunar
Þrjú stjórntæki á stöðuslá Writer leyfa að breyta aðdrætti og skoðun á framsetningu textaskjala.
Táknmyndir fyrir skoðun framsetningar frá vinstri til hægri: Einn dálkur. Skoðunarhamur með síðum hlið við hlið. Bókarhamur með tveimur síðum eins og í opinni bók.
Dragðu aðdráttarsleðann til vinstri til að sýna fleiri síður, dragðu til hægri til að draga inn á síðu og sýna þar með minna svæði á síðunni.