Valmyndir

Eftirfarandi er lýsing á hjálparatriðum varðandi valmyndir og samskiptaglugga.

Táknmynd fyrir athugasemd

Glugginn sem inniheldur skjalið sem þú vilt vinna í verður að vera virkur til þess að hægt sé að nota valmyndaskipanirnar. Svipað er með samhengisvalmyndir, þú verður að velja einhvern hlut til þess að valmyndaskipanir honum tengdar verði virkar.


Táknmynd fyrir aðvörun

Valmyndirnar eru næmar fyrir samhengi. Það þýðir að atriðin sem tiltæk eru í valmyndum fara eftir því hvaða verk er verið að vinna. Sem dæmi má taka, að ef bendillinn er staðsettur í textastreng, þá eru virkar þær skipanir sem tengjast sniði og breytingum á texta. Ef þú hefur valið eitthvað myndefni, þá eru virkar skipanir til meðhöndlunar á myndum.


Skrá

Þessar skipanir vinna með núverandi skjal, opna nýtt skjal, eða loka forritinu.

Breyta

Þessi valmynd er með skipunum til breytinga á núverandi skjali.

Skoða

Þessi valmynd er með skipunum til stjórnunar á hvernig skjalið er birt á skjánum.

Setja inn

Þessi valmynd er með þeim skipunum sem notaðar eru til innsetningar á ýmsum hlutum í skjalið, til dæmis myndefni, hluti úr öðrum forritum og sérstafi.

Sníða

Inniheldur skipanir til að sníða útlit og efni skjalsins.

Skyggna

Þessi valmynd gefur skipanir varðandi umsýslu og flakk um skyggnur.

Skyggnusýning

Inniheldur skipanir og valmöguleika fyrir birtingu á kynningum.

Verkfæri

Inniheldur stafsetningaráhöld og safn með ýmiskonar myndefni sem þú getur sett inn í skjöl, auk tóla til að sérsníða valmyndir og til að breyta hegðun forritsins.

Gluggi

Inniheldur skipanir til að sýsla með og birta forritsglugga.

Hjálp

Hjálparvalmyndin gerir kleift að ræsa og stilla hjálparkerfi LibreOffice.