Kveikja eða slökkva á ítarlegum hjálparábendingum
Ítarlegar hjálparábendingar gefa stutta lýsingu á hlutverki tiltekinnar táknmyndar, textareits eða valmyndarskipunar, og birtist þegar bendlinum er haldið ofan við þessum atriðum.
Til að kveikja eða slökkva á ítarlegum hjálparábendingum:
-
Choose LibreOffice - PreferencesTools - Options - LibreOffice - General, and check Extended tips.
Hakmerki gefur til kynna að ítarlegar hjálparábendingar séu virkar.
Til að kveikja tímabundið á ítarlegum hjálparábendingum:
-
Ýttu á flýtilyklana Shift+F1 til að virkja ítarlegar hjálparábendingar einu sinni.
Spurningamerki birtist við hlið músarbendilsins. Þú getur fært þennan hjálparbendil yfir allar stýringar, táknmyndir og valmyndaskipanir til að fá fram lýsingu á skipuninni. Hjálparbendillinn er svo óvirkur næst þegar þú smellir með músinni.