LibreOffice hjálparglugginn

Táknmynd fyrir aðvörun

Hjálparkerfið fyrir allar útgáfur hugbúnaðarins er byggt á sömu grunnskrám. Einhverjar aðgerðir sem lýst er í þessari hjálp, gætu hafa verið útilokaðar í þessari tilteknu dreifingu. Einhverjir eiginleikar sem tilheyra sérstaklega ákveðinni dreifingu, gætu verið án þess að þeirra sé getið í þessari hjálp.


Hjálparglugginn birtir valda hjálparsíðu.

Verkfærastikan inniheldur mikilvægar aðgerðir til stjórnunar á hjálparkerfinu:

Táknmynd

Felur og birtir stjórnunarspjaldið

Táknmynd

Flettir aftur á næstu síðu

Táknmynd

Flettir fram á næstu síðu

Táknmynd

Fer á fyrstu síðu núverandi efnisflokks í hjálpinni

Táknmynd

Prentar núverandi síðu

Táknmynd

Bætir þessari síðu í bókamerkin þín

Leitartáknmynd

Opnar gluggann Finna á þessari síðu.

Þessar skipanir má einnig finna í samhengisvalmynd (hægrismella) hjálparskjalsins.

Hjálparsíða

Þú getur afritað efni með stöðluðum skipunum úr hjálparskoðaranum yfir á klippispjaldið í stýrikerfinu. Til dæmis:

  1. Veldu á hjálparsíðunni þann texta sem þú vilt afrita.

  2. Ýttu á +C.

Til að leita á núverandi hjálparsíðu:

  1. Smelltu á Finna á þessari síðu táknmyndina.

    Glugginn Finna á þessari síðu opnast.

    Táknmynd fyrir athugasemd

    Þú getur líka smellt á hjálparsíðuna og ýtt á +F.


  2. Settu in í leitarstrengsreitinn þann texta sem þú vilt finna.

  3. Veldu leitarvalkostina sem þú vilt nota.

  4. Smelltu á Leita.

    Til að finna næsta tilvik leitarstrengsins á síðunni, smelltu aftur á Finna.

Stjórnunarspjald

Stjórnunarspjald Hjálpargluggans inniheldur síðuflipana Efni, Atriðaskrá, Leita og Bókamerki.

Fellilistinn allra efst er þar sem hægt er að velja aðrar hjálpareiningar LibreOffice. Fliparnir Atriðaskrá og Leita innihalda einungis gögn fyrir þá einingu LibreOffice sem valin er í það skiptið.

Efni

Birtir efnisyfirlit með meginatriðum allra eininganna.

Atriðaskrá

Birtir lista yfir stikkorð fyrir þá einingu LibreOffice sem valin er í það skiptið.

Leita

Gerir þér kleift að leita í öllum texta. Leitin mun yfirfara öll hjálpargögn fyrir þá einingu LibreOffice sem valin er í það skiptið.

Bókamerki

Inniheldur þau bókamerki sem skilgreind eru af notandanum. Þú getur breytt eða eytt bókamerkjum eða smellt á þau til að fara á viðkomandi hjálparsíður.