Eiginleikar LibreOffice Draw
Þú getur notað LibreOffice Draw til að gera jafnt einfaldar sem flóknari teikningar og flutt þær út eða vistað á mörgum algengum myndsniðum. Þú getur einnig sett töflur, gröf, formúlur og annað sem búið er til í öðrum LibreOffice forritum inn í teikningarnar þínar.
Vektor teikningar
LibreOffice Draw býr til línuteikningar með línum og kúrvum sem skilgreindar eru með stærðfræðilega reiknuðum vigrum. Vigrar lýsa línum, sporbaugum og marghyrningum samkvæmt rúmfræðilegum skilgreiningum.
Búa til þrívíddarhluti
Þú getur búið til einfalda þrívíddarhluti á borð við kassa, kúlur og hólka í LibreOffice Draw, það er meira að segja hægt að stjórna úr hvaða átt ljósgjafinn lýsir.
Hnitanet og stoðlínur
Hnitanet og stoðlínur gefa sjónrænar vísbendingar til hjálpar við að raða hlutum upp í teikningum. Hægt er að láta hluti límast við hnitanet, stoðlínur eða brúnir á öðrum hlutum.
Tengja hluti til að sýna vensl
Þú getur tengt saman hluti í LibreOffice Draw með sérstökum "tengilínum" til að sýna samhengi eða vensl hlutanna. Tengilínur festast við svokallaða festipunkta á teiknuðum hlutum og haldast þær tengdar þótt hlutirnir séu færðir til. Tengilínur eru mikið notaðar við gerð flæðirita, skipurita og tæknilegra skýringamynda.
Birting málsetninga
Tæknilegar teikningar og skýringamyndir sýna oft mál á hlutum í teikningunni. Hægt er að nota málsetningalínur í LibreOffice Draw, til að reikna og birta málsetningar.
Myndasafn
Myndasafnið geymir myndir, myndskeið, hljóð og aðra hluti sem þú getur sett inn í teikningarnar þínar, en einnig í önnur LibreOffice forrit.
Myndskráasnið
LibreOffice Draw getur flutt út í mörg algeng myndskráasnið, svo sem BMP, GIF, JPG, og PNG.