Valmyndir

Eftirfarandi er lýsing á öllum valmyndum LibreOffice Draw, auk undirvalmynda og samskiptagluggum þeirra.

Táknmynd fyrir athugasemd

Glugginn sem inniheldur skjalið sem þú vilt vinna í verður að vera virkur til þess að hægt sé að nota valmyndaskipanirnar. Svipað er með samhengisvalmyndir, þú verður að velja einhvern hlut til þess að valmyndaskipanir honum tengdar verði virkar.


Táknmynd fyrir aðvörun

Valmyndirnar eru næmar fyrir samhengi. Það þýðir að atriðin sem tiltæk eru í valmyndum fara eftir því hvaða verk er verið að vinna. Sem dæmi má taka, að ef bendillinn er staðsettur í textastreng, þá eru virkar þær skipanir sem tengjast sniði og breytingum á texta. Ef þú hefur valið eitthvað myndefni, þá eru virkar skipanir til meðhöndlunar á myndum.


Skrá

Þessi valmynd inniheldur ýmsar almennar skipanir fyrir vinnu með Draw skjöl, svo sem við að opna, loka og prenta. Til að loka LibreOffice Draw forritinu, er smellt á Hætta.

Breyta

Skipanirnar í þessari valmynd eru notaðar til að breyta Draw skjölum (til dæmis að afrita og líma).

Skoða

Stillir hvernig Draw-skjöl eru birt.

Setja inn

Þessi valmynd gerir þér kleift að setja inn í Draw skjöl ýmis atriði á borð við myndefni og stoðlínur.

Sníða

Inniheldur skipanir til að sníða útlit framsetningar og innihalds skjala.

Verkfæri

Þessi valmynd inniheldur ýmis verkfæri fyrir LibreOffice Draw auk þess að gefa aðgang að tungumála- og kerfisstillingum.

Laga

Inniheldur skipanir til ýmissa breytinga á hlutum í skjalinu.

Gluggi

Inniheldur skipanir til að sýsla með og birta forritsglugga.

Hjálp

Hjálparvalmyndin gerir kleift að ræsa og stilla hjálparkerfi LibreOffice.