Margfalda hluti
Þú getur búið til tvítök eða mörg afrit af hlutum. Afritin geta verið nákvæmlega eins og frummyndin, en geta líka verið frábrugðin í stærð, lit og stöðu.
Eftirfarandi dæmi býr til peningastafla með því að afrita oft sama sporbauginn.
-
Notaðu verkfærið Sporbaugur til að teikna gegnheilan gulan sporbaug.
-
Veldu sporbauginn og farðu í Breyta - Margfalda.
-
Settu inn 12 sem Fjöldi afrita.
-
Settu inn neikvæð gildi fyrir breidd og hæð svo að peningarnir minnki eftir því sem ofar dregur í staflanum.
-
Til að skilgreina litabreytingu á peningunum, veldu þá mismunandi liti í Byrjun and Endir reitunum. Liturinn í Byrjun reitnum er settur á hlutinn sem þú ert að margfalda.
-
Smelltu á Í lagi til að búa til afritin.