Að nota gröf í LibreOffice
LibreOffice lets you present data graphically in a chart, so that you can visually compare data series and view trends in the data. You can insert charts into spreadsheets, text documents, drawings, and presentations.
Gögn í gröfum
Gröf geta byggst á eftirfarandi gögnum:
-
Töflugildi úr reitasviðum í Calc
-
Gildi reita frá Writer töflu
-
Gildi sem þú slærð inn í gagnatöflugluggann (þú getur búið til þessi gröf í Writer, Draw, eða Impress, og þú getur einnig afritað og límt þau í Calc)
Að setja inn graf
Að breyta grafi
-
Smelltu á graf til að breyta eiginleikum hlutar:
Stærð og staðsetning á núverandi síðu.
Hliðjöfnun, textaskrið, útjaðrar og fleira.
-
Tvísmelltu á graf til að fara í breytingaham:
Grafgildi (í gröfum með eigin gögnum).
Graftegundir, ásar, titlar, veggir, hnitanet, og fleira.
-
Tvísmelltu á grafeinindi í breytingaham:
Tvísmelltu á ás til að breyta skala, tegund, lit, eða öðru.
Tvísmelltu á gagnapunkt til að velja og breyta gagnaröðum sem tilheyra gagnapunktinum.
Með gagnaröð valda, smelltu á punkt, tvísmelltu svo á gagnapunkt til að breyta eiginleikum gagnapunktsins (til dæmis, einföld súla í súluriti).
Tvísmelltu á skýringu til að velja og breyta skýringu. Smelltu, og tvísmelltu svo á tákn í valinni skýringu til að breyta tengdri gagnaröð.
Tvísmelltu á hvaða einindi sem er, eða smelltu á einindið og opnaðu Sníða valmyndina, til að breyta eiginleikum.
-
Smelltu fyrir utan graf til að hætta í breytiham.
Til að prenta graf í hámarksgæðum, geturðu flutt út grafið í PDF skrá og prentað svo PDF skránna.
Í breytiham fyrir graf, sérðu sniðslánna fyrir gröf nálægt efri ramma skjalsins. Teiknisláin fyrir gröf birtist í neðri ramma skjalsins. Teiknisláin sýnir aðeins hluta af táknmyndum á teiknislánni frá Draw og Impress.
Hægt er að hægrismella á einindi í grafi til að opna samhengisháða valmynd. Valmyndin birtir margar skipanir til að sníða valið einindi.