Valmyndir

Eftirfarandi valmyndaskipanir eru tiltækar í töflureikniskjölum.

Táknmynd fyrir athugasemd

Glugginn sem inniheldur skjalið sem þú vilt vinna í verður að vera virkur til þess að hægt sé að nota valmyndaskipanirnar. Svipað er með samhengisvalmyndir, þú verður að velja einhvern hlut til þess að valmyndaskipanir honum tengdar verði virkar.


Táknmynd fyrir aðvörun

Valmyndirnar eru næmar fyrir samhengi. Það þýðir að atriðin sem tiltæk eru í valmyndum fara eftir því hvaða verk er verið að vinna. Sem dæmi má taka, að ef bendillinn er staðsettur í textastreng, þá eru virkar þær skipanir sem tengjast sniði og breytingum á texta. Ef þú hefur valið eitthvað myndefni, þá eru virkar skipanir til meðhöndlunar á myndum.


Skrá

Þessar skipanir vinna með núverandi skjal, opna nýtt skjal, eða loka forritinu.

Breyta

Þessi valmynd er með skipunum til breytinga á núverandi skjali.

Skoða

Þessi valmynd er með skipunum til stjórnunar á hvernig skjalið er birt á skjánum.

Setja inn

Setja inn valmyndin inniheldur skipanir til að setja inn ný einindi, eins og reiti, raðir, blöð og reitaheiti í núverandi blað.

Sníða

Sníða-valmyndin inniheldur aðgerðir til að sníða valda reiti, hluti, og innihald reita í skjalinu.

Blað

This menu contains commands to modify and manage a sheet and its elements.

Gögn

Notaðu Gagna-valmyndina til að breyta gögnunum á núverandi blaði. Hægt er að skilgreina gagnasvið, röðun og sía gögnin, reikna niðurstöður, efnisskipa gögn, og opna veltitöflu.

Verkfæri

Verkfæra valmyndin inniheldur aðgerðirr til að athuga stafsetningu, greina tilvísanir, leita að villum og skilgreina atburðarás.

Gluggi

Inniheldur skipanir til að sýsla með og birta forritsglugga.

Hjálp

Hjálparvalmyndin gerir kleift að ræsa og stilla hjálparkerfi LibreOffice.